Sæl verið þið öll sömul.
Þá eru strákarnir komnir í jólafrí og næsta æfing því 4.janúar.
Jólamótið heppnaðist vel að vanda og úrslit reiðust ekki fyrr en í síðustu umferð. Það fór svo að lið Basel vann óvæntan sigur í mótinu en fyrirfram myndi maður halda að stórliðin Barcelona, Bayern München og Chelsea ættu að taka þetta.
Það er því ljóst að það má hvergi vanmeta lið Basel.
Veitt voru nokkur einstaklingsverðlaun að móti loknu.
Bestu tilþrifin: Stefán Ljubicic fyrir frábæra aukaspyrnu
Besti tuðarinn: Arnór Ingi fyrir mjög frambærilegt tuð og fékk gullna snuðið fyrir vikið.
Einspilari mótsins: Marvin stóð sig afar vel í einspilinu.
Besti varnarmaðurinn: Reynir fékk gullna straujárnið fyrir feyki góðan varnarleik.
Stoðsendingakóngurinn: Jón Grétar átti auðveldara en hinir að leita uppi samherjana.
Markvörður mótsins: Patrekur fékk á sig fæst mörk í mótinu og hlaut því þessi verðlaun.
Markahæstur og MVP: Jón Arnór skoraði flest mörk og var einnig stigahæstur í MVP stigaskorinu.
Besti dómarinn: Valþór átti þennan heiður skuldlausan enda átti hann það til að dæma leikinn sem fram fór á hinum vellinum á meðan hann sjálfur lék eins og kóngur í vörninni.
Annars var þetta bara til gamans gert og sá ég ekki annað en að allir hafi haft gaman af (kannski fyrir utan Arnór Inga sem var ekki sáttur við dómgæsluna

)
Að öðru....
Á gamlársdag á að heiðra alla þá sem urðu Íslandsmeistarar frá Reykjanesbæ á árinu og fer það fram í íþróttahúsinu í Njarðvík klukkan 13:00. Þeir sem eiga að mæta eru:
Andri Már Ingvarsson
Arnór Elí Guðjónsson
Björgvin Theodór Hilmarsson
Tómas Óskarsson
Atli Haukur Brynleifsson
Jón Ásgeirsson
Jón Arnór Sverrisson
Brynjar Bergmann Björnsson
Arnór Ingi Ingvason
Marvin Harrý Guðmundsson
Björn Grétar Sveinsson
Valþór Pétursson
Reynir Þór Reynisson
Viktor Freyr Pálsson
Andri Snær Sölvason
Jón Grétar Sverrisson
Jóel Freyr Magnússon
Brynjar Þór Hansson
Eftir áramót verður breyting á æfingatíma en ekki er alveg ljóst hvernig sú breyting verður en það verður skýrt út um leið og við byrjum að æfa 4. janúar 2012.
Gleðileg jól, farsælt komandi ár og takk fyrir skemmtileg kynni og frábærar stundir á gamla árinu.
Kveðja,
Jói og Addi.